Þorlákshöfn Justas Tamulis leikur með Þór á komandi tímabili.
Þorlákshöfn Justas Tamulis leikur með Þór á komandi tímabili. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Litáíski körfuboltamaðurinn Justas Tamulis er genginn til liðs við Þór í Þorlákshöfn en hann var í stóru hlutverki hjá Íslandsmeisturum Vals á síðasta tímabili. Justas er þrítugur framherji sem áður lék eitt tímabil með KR en í millitíðinni með Melilla í spænsku B-deildinni og Jonava í Litáen. Hann kemur til Þórsara í staðinn fyrir Franck Kamgain sem þeir fengu frá Hamri í sumar en staldraði stutt við í Þorlákshöfn.