Sumarlok voru hjá Veðurstofu Íslands á miðnætti síðastliðna nótt.
Sumarið reyndist í svalara lagi miðað við undanfarna tvo áratugi rúma, segir Trausti Jónsson veðurfræðingur á Moggablogginu.
Meðalhiti þess á landsvísu reiknast 8,3 eða 8,4 stig. Þetta er lægsta tala sem sést hefur á þessari öld, eða síðan sumarið 1998, en þá var hún sú sama og nú. Nokkru kaldara var nokkru fyrr á síðustu öld, þ.e. árin 1993 og 1992.
Yngra fólkið, fram á fertugsaldur sennilega, man ekki jafnkalt sumar nema barnsminni þess sé alveg sérlega gott, bætir Trausti við.
Trausti segir að Veðurstofan hafi í 100 ár skilgreint sumarið sem tímann frá júní til september. Alþjóðaveðurfræðistofnunin miði við þrjá mánuði (júní til ágúst). En misseristímatalið gamla miði sem kunnugt er við sex
...