Marteinn Hákonarson fæddist 30. janúar 1959. Hann lést 14. september 2024.

Útför hans fór fram 23. september 2024.

Mig langar með nokkrum orðum að minnast Marteins vinar míns. Þar sem við áttum sameiginleg áhugamál þá kynntumst við fyrir tæpum 14 árum. Okkur varð vel til vina sem svo seinna þróaðist í mjög góða vináttu. Það var alltaf þannig að Marteinn tók öllum nýjum meðlimum vel og er það ekki síst fyrir hans sakir að meðlimir héldust innan félagsskaparins út af honum. Marteinn var mikil driffjöður og hafa verið farnar margar svokallaðar haustlitaferðir, bæði í Þórsmörk, Fjallabak og fullt af fleiri hálendisferðum, hann elskaði að fara út fyrir þjóðveginn og keyra um fjallvegi, hvort sem það var á jeppa eða mótorhjóli. Við fórum saman í margar ferðir á mótorhjólum og er mér minnisstæðast þegar við hjóluðum yfir Kjöl. Sú ferð byrjaði

...