„Það er náttúrlega hræðilegt tilefni að þurfa að ræða þetta þegar orðið hefur banaslys en það er rétt að þetta er ekki nýtt mál og þetta hefur verið rætt í að minnsta kosti nokkur ár,“ segir Kjartan Magnússon borgarfulltrúi…
Egill Aaron Ægisson
egillaaron@mbl.is
„Það er náttúrlega hræðilegt tilefni að þurfa að ræða þetta þegar orðið hefur banaslys en það er rétt að þetta er ekki nýtt mál og þetta hefur verið rætt í að minnsta kosti nokkur ár,“ segir Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins um aðgerðir til að bæta umferðaröryggi á Sæbraut.
Kjartan lagði fram tillögu í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur 18. október í fyrra þar sem meðal annars var lagt til að öryggi gangandi vegfarenda yfir Sæbraut yrði aukið en tillagan var felld.
Lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í kjölfarið fram bókun þar
...