Guðmundur Rúnar Ásmundsson Neighbors fæddist í Reykjavík 2. nóvember 1957. Hann lést 28. ágúst 2024.

Foreldrar hans voru Ída Kristjánsdóttir, f. 22. september 1922, d. 29. mars 2015, og Ásmundur Magnússon, f. 6. janúar 1924, d. 2. október 2014.

Systur hans sammæðra eru Ann Mikkelsen, f. 19. júní 1950, og Ásta Þóra Ólafsdóttir, f. 21. ágúst 1963. Systkini samfeðra eru Garðar Vilhelm Ásmundsson, f. 21. desember 1950, d. 17. apríl 1978, Ásdís Ásmundsdóttir, f. 21. janúar 1964, og Elfa Björk Ásmundsdóttir, f. 19. nóvember 1965. Eftirlifandi eiginkona hans er Svava Jóhanna Jóhannsdóttir, f. 26. maí 1957. Þau eignuðust þrjú börn, Ástu Dögg, f. 1985, Jóhann Garðar, f. 1987 og Davið Ray, f. 1991 sem er kvæntur Candice, f. 1989. Barnabörnin eru alls fjögur, Damien, f. 2005, Stellar, f. 2015, Thora, f. 2016, og Ida Ray, f. 2022.

...