Háskólabíó The Substance ★★★·· Leikstjórn og handrit: Coralie Fargeat. Aðalleikarar: Demi Moore, Margaret Qualley og Dennis Quaid. Bandaríkin, 2024. Sýnd á Alþjólegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF.
Ofsi Demi Moore í eftirminnilegu atriði úr The Substance, eða Efninu. Myndin er ekki fyrir viðkvæma.
Ofsi Demi Moore í eftirminnilegu atriði úr The Substance, eða Efninu. Myndin er ekki fyrir viðkvæma.

kvikmyndir

Helgi Snær

Sigurðsson

Það var óneitanlega sérstök upplifun að sjá kvikmyndina The Substance á RIFF í fullum sal í Háskólabíói af tveimur ástæðum. Annars vegar vegna þess að myndin er býsna óvenjuleg hrollvekja, sérlega blóðug og subbuleg þegar líður á seinni hlutann, og hins vegar að viðtökur bíógesta voru afar misjafnar.

„Hvað er að ykkur?!“ hrópaði ung kona sem sat við hlið mér og beindi orðum sínum að nokkrum ungum mönnum sem skellihlógu þremur sætaröðum fyrir framan okkur. Þeir létu athugasemdir konunnar ekki á sig fá og héldu bara áfram að hlæja og jafnvel hærra en áður.

Maður verður ekki oft vitni að slíkum viðbrögðum í bíósal. Fólk er auðvitað ýmsu vant þegar kemur

...