Jóhannes Karl Guðjónsson nýtur sín vel hjá AB í dönsku C-deildinni í knattspyrnu en hann tók við þjálfun liðsins í maí á þessu ári eftir að David Roupanah var sagt upp störfum og skrifaði undir þriggja ára samning í Kaupmannahöfn. „Þessir fyrstu mánuðir hérna úti hafa verið mjög áhugaverðir,“ sagði Jóhannes Karl í samtali við Morgunblaðið. »23