Eva Gunnarsdóttir
Eva Gunnarsdóttir

Listsýning í samvinnu Evu Gunnarsdóttur og Richards Schutts verður opnuð í Núllinu galleríi í Bankastræti á morgun, föstudaginn 4. október, klukkan 18. Er um að ræða kynningu á bók sem miðlar persónulegri sögu konu sem tekst á við ristilkrabbamein. Segir Eva meðal annars í bókinni frá því hvernig sálfræði, núvitund og samkennd nýttust henni í gegnum erfiða meðferð.

Sýningin er opin til og með 6. október og eru allir velkomnir.