KR-ingur Óliver Dagur Thorlacius er kominn aftur í raðir KR-inga.
KR-ingur Óliver Dagur Thorlacius er kominn aftur í raðir KR-inga. — Ljósmynd/KR

Knattspyrnumaðurinn Óliver Dagur Thorlacius hefur gert þriggja ára samning við uppeldisfélagið sitt KR og mun leika með liðinu frá og með næstu leiktíð. Óliver kemur til KR frá Fjölni, þar sem hann hefur verið undanfarin tvö tímabil. Þar á undan var hann leikmaður Gróttu og fór með liðinu úr 2. deild og upp í úrvalsdeildina, undir stjórn núverandi stjóra KR, Óskars Hrafns Þorvaldssonar. Miðjumaðurinn lék tvo leiki með meistaraflokki KR árið 2017.