Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitunnar, leita jarðhita á höfuðborgarsvæðinu til að tryggja stöðuga afhendingu á heitu vatni til íbúa og fyrirtækja. Veitur hafa fengið heimild hjá Reykjavíkurborg til að hefja rannsóknarboranir á Kjalarnesi og Geldinganesi, og eiga þær að hefjast í þessum mánuði.

Í sumar hafa staðið yfir tilraunaboranir á Álftanesi, sem þykja lofa góðu. » 16