Uppaldir knattspyrnumenn í Völsungi á Húsavík hafa verið áberandi hjá KA undanfarin ár og nú eru sex í hópnum. „Það er stutt að fara hérna yfir fyrir okkur Völsunga,“ segir Hallgrímur Mar Steingrímsson, sem gekk í KA 2009 og fagnaði bikarmeistaratitlinum á dögunum
Bikarmeistarar KA 2024 Uppaldir Völsungar í hópnum. Ásgeir Sigurgeirsson heldur í bikarinn með vinstri, Hallgrímur Jónasson þjálfari er með KA-trefil á miðri mynd til vinstri, Elvar Árni Aðalsteinsson heldur í ávísunina á endanum fyrir miðri mynd, Hallgrímur Mar Steingrímsson er mest áberandi hægra megin við miðju, Hrannar Björn Steingrímsson er vinstra megin við hann og fyrir neðan hann sést Steinþór Már Auðunsson klappa.
Bikarmeistarar KA 2024 Uppaldir Völsungar í hópnum. Ásgeir Sigurgeirsson heldur í bikarinn með vinstri, Hallgrímur Jónasson þjálfari er með KA-trefil á miðri mynd til vinstri, Elvar Árni Aðalsteinsson heldur í ávísunina á endanum fyrir miðri mynd, Hallgrímur Mar Steingrímsson er mest áberandi hægra megin við miðju, Hrannar Björn Steingrímsson er vinstra megin við hann og fyrir neðan hann sést Steinþór Már Auðunsson klappa. — Morgunblaðið/Ólafur Árdal

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Uppaldir knattspyrnumenn í Völsungi á Húsavík hafa verið áberandi hjá KA undanfarin ár og nú eru sex í hópnum. „Það er stutt að fara hérna yfir fyrir okkur Völsunga,“ segir Hallgrímur Mar Steingrímsson, sem gekk í KA 2009 og fagnaði bikarmeistaratitlinum á dögunum.

Róbert Ragnar Skarphéðinsson braut ísinn og spilaði fyrst með KA 1997. Hann lék líka með Breiðabliki eftir það en fór svo aftur til Húsavíkur 2003. Pálmi Rafn Pálmason gekk til liðs við KA 2003 og lék með liðinu í þrjú tímabil. Eftir að hafa síðan leikið með Val og KR lauk hann ferlinum með Völsungi í 2. deild í fyrra. Bjarki Baldursson fór í KA 2012 og Sæþór Olgeirsson spilaði með liðinu 2018 og 2019, en báðir eru hættir.

...