Körfuknattleiksdeild Hauka hefur samið við Belgann Seppe D'Espaller um að leika með karlaliðinu á komandi tímabili. D'Espaller er 25 ára gamall framherji sem er 198 sentimetrar á hæð. Hann hefur leikið í sameiginlegri úrvalsdeild Belgíu og…
Ólafssalur Seppe D'Espaller leikur með Haukum á keppnistímabilinu.
Ólafssalur Seppe D'Espaller leikur með Haukum á keppnistímabilinu. — Ljósmynd/Haukar

Körfuknattleiksdeild Hauka hefur samið við Belgann Seppe D'Espaller um að leika með karlaliðinu á komandi tímabili. D'Espaller er 25 ára gamall framherji sem er 198 sentimetrar á hæð. Hann hefur leikið í sameiginlegri úrvalsdeild Belgíu og Hollands undanfarin tímabil, síðast með belgíska liðinu Kortrijk. Skilaði D'Espaller sjö stigum og tæplega fimm fráköstum að meðaltali í leik með Kortrijk á síðasta tímabili þar sem liðið hafnaði í 16. sæti.