Sigmundur Þórisson fæddist í Reykjavík 30. mars 1946 og ólst þar upp. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 20. september 2024.

Foreldrar hans voru Þuríður Sigmundsdóttir, húsmóðir og skrifstofumaður, og Þórir Högni Bergsteinsson múrarameistari.

Systkini hans eru: Svava Ragnhildur Eatough, f. 1. apríl 1940, búsett í Bandaríkjunum og Örn Þórisson, f. 3. janúar 1958, búsettur í Reykjavík.

Sigmundur kvæntist Minnie Eggertsdóttur, f. 13. maí 1946, sérkennara þann 9. ágúst 1969. Þau slitu samvistir árið 2004. Synir þeirra eru: 1) Freyr Gauti, f. 17. janúar 1972, bæklunarskurðlæknir búsettur í Svíþjóð. Eiginkona hans er Sylvía Húnfjörð tannlæknir. Börn þeirra eru: Halldóra Minnie, f. 2006, Kara Dögg, f. 2007 og Þórir Steinn, f. 2009. 2) Eggert Högni, f. 21. febrúar 1974

...