Þáttaröðin Baby Reindeer var ranglega sögð byggð á sannri sögu, samkvæmt úrskurði dómara í Kaliforníu. Það þýðir að Fiona Harvey, konan sem persónan Martha er sögð byggð á, getur hafið málsókn á hendur Netflix, sem framleiddi, vegna ærumeiðinga
Eltihrellir? Jessica Gunning sem Martha, sem byggð er á Fionu Harvey.
Eltihrellir? Jessica Gunning sem Martha, sem byggð er á Fionu Harvey.

Þáttaröðin Baby Reindeer var ranglega sögð byggð á sannri sögu, samkvæmt úrskurði dómara í Kaliforníu. Það þýðir að Fiona Harvey, konan sem persónan Martha er sögð byggð á, getur hafið málsókn á hendur Netflix, sem framleiddi, vegna ærumeiðinga. Í úrskurðinum kemur fram, samkvæmt The Guar­dian, að í þáttunum sé gefið í skyn að Harvey hafi verið dæmd fyrir að hrellielta höfund þáttanna, Richard Gadd, en Netflix hafi ekki gert neitt til þess að sannreyna sögu Gadds eða fela það að persónan Martha sé innblásin af Harvey. Harvey hefur haldið því fram að hún sé ranglega sökuð um að hafa brotið á Gadd kynferðislega, reynt að krækja úr honum augun og verið fangelsuð fyrir athæfið.