Magnús Gunnar Karlsson átti sannkallaðan stórleik í marki Gróttu og varði 21 skot þegar liðið hafði betur gegn ÍBV, 32:30, í 5. umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik á Seltjarnarnesi í gær en með sigrinum tyllti Grótta sér á toppinn í deildinni. Þetta var fjórði sigur Gróttu á tímabilinu en liðið er með átta stig í efsta sætinu og á leik til góða á FH sem er í öðru sæti. »26