Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran var útnefnd rísandi stjarna á alþjóðlegu óperuverðlaununum, Opera Awards, sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í München á fimmtudagskvöld. Deildi hún verðlaununum með barítónsöngvaranum Justin Austin þar sem þau urðu jöfn í fyrsta sæti. Þau voru tilnefnd ásamt átta öðrum söngvurum. Arnheiður er fastráðin við Þjóðaróperuna í Prag og hefur vakið athygli í uppfærslum þar, m.a. fyrir hlutverk Oktavian í Rósariddaranum eftir Strauss. Hún hlaut tékknesku sviðslistaverðlaunin í fyrra sem óperusöngkona ársins. Arnheiður mun í Prag 2026 syngja hlutverk Mélisande í óperunni Pelléas et Mélisande eftir Debussy í leikstjórn Christofs Loy, sem valinn var leikstjóri ársins á Opera Awards.