Valur Birkir Heimisson lék með Valsmönnum frá 2020 til 2023.
Valur Birkir Heimisson lék með Valsmönnum frá 2020 til 2023. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Knattspyrnumaðurinn Birkir Heimisson er genginn til liðs við Val á nýjan leik eftir að hafa leikið með uppeldisfélagi sínu Þór í 1. deildinni á nýliðnu keppnistímabili. Birkir skrifaði undir fjögurra ára samning á Hlíðarenda en hann gekk til liðs við Þórsara frá Val fyrir síðasta keppnistímabil. Alls á hann að baki 82 leiki í efstu deild með Val, þar sem hann hefur skorað fimm mörk, en hann skoraði fimm mörk í 17 leikjum með Þór í sumar.