Eiríkur Rúnar Eiríksson húsasmíðameistari fæddist á Selfossi 9. apríl 1974. Hann lést af slysförum 17. september 2024.

Foreldrar Eiríks voru Eiríkur Tómasson bóndi í Miðdalskoti, Laugardal, f. 26. janúar 1921, d. 28. september 2000 og Guðrún Karlsdóttir bóndi í Miðdalskoti, Laugardal, f. 10. janúar 1931, d. 2. febrúar 2014.

Systkini Eiríks eru Margrét geðhjúkrunarfræðingur, f. 31. ágúst 1954, Karl húsasmíðameistari, f. 25. desember 1955 og Ósk húsmóðir, f. 24. desember 1964.

Eftirlifandi eiginkona Eiríks er Helga Helena Sturlaugsdóttir, f. 5. febrúar 1973, prestur og framhaldsskólakennari. Foreldrar Helgu eru Sturlaugur Jóhann Eyjólfsson, f. 14. janúar 1940 og Birna Kristín Lárusdóttir, f. 22. júní 1946. Dætur Helgu og Eiríks eru Guðrún Eva húsasmíðanemi, f. 30. nóvember 2005, kærasti hennar er

...