Sigbjörn, alltaf kallaður Jónsi, fæddist í Reykjavík 23. janúar 1949. Hann lést á gjörgæsludeild LSH við Hringbraut 24. september 2024.

Foreldrar Jónsa voru Júlíana Bjarnadóttir, f. 7. febrúar 1920, d. 15.9. 1997, og Jóhann Jónsson, f. 21. mars 1896, d. 3. nóvember 1979.

Alsystkini Jónsa eru: Guðmundur, f. 12.7. 1939, d. 12.1. 2013; María, f. 21.4. 1943, d. 4.7. 2000; Hildur, f. 9.1. 1946; Lóa Björg, f. 15.5. 1952. Jónsi átti tvo hálfbræður, Ragnar Jóhannsson, f. 25.5. 1938, d. 1.5. 1977, og Guðmund Jóhannsson, f. 18.4. 1943, d. 17.2. 2011.

Jónsi kvæntist Snjólaugu Benediktsdóttur, f. 12.1. 1952, þann 6.12. 1969. Saman eiga þau eina dóttur, Ásmundu Sigrúnu, f. 23.1. 1970. Dætur Ásmundu eru: Heiðrún Guðný Gunnarsdóttir, f. 8.3. 1990, maki Ásgeir Börkur Ásgeirsson. Þau eiga drengina Patrik Börk

...