Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur tilkynnt leikmannahóp sinn fyrir leiki gegn Finnlandi og Grikklandi í B-deild Þjóðadeildar Evrópu síðar í mánuðinum. Mesta athygli vekur að Matt Doherty, bakvörður Wolves í…

Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur tilkynnt leikmannahóp sinn fyrir leiki gegn Finnlandi og Grikklandi í B-deild Þjóðadeildar Evrópu síðar í mánuðinum. Mesta athygli vekur að Matt Doherty, bakvörður Wolves í ensku úrvalsdeildinni, er ekki í leikmannahópnum að þessu sinni. Írar eru án stiga eftir töp gegn Englandi og Grikklandi í fyrstu tveimur umferðunum.

Körfuknattleiksþjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson verður ekki á hlíðarlínunni hjá Val er liðið mætir Stjörnunni í Garðabæ í 1. umferð úrvalsdeildar karla í kvöld. Finnur var í gær úrskurðaður í eins leiks bann fyrir framkomu sína í leik Vals og Keflavíkur í meistarakeppni KKÍ um síðustu helgi.

Portúgalski knattspyrnustjórinn Marco SIlva kemur til greina sem næsti stjóri enska

...