Guðmundur Smári Guðmundsson fæddist í Reykjavík 24. desember 1950. Hann lést 25. september 2024 á Landspítalanum í Fossvogi.

Foreldrar hans voru Guðmundur H. Eyleifsson, f. 3. mars 1919, d. 19. ágúst 1974 og Katrín Gísladóttir, f. 27.10. 1921, d. 12.5. 1999.

Hálfsystkini Guðmundar eru: Ingi Sævars Oddsson, f. 3.1. 1941, d. 19.3. 2009, Sigurður Hrafn Tryggvason, f. 7.11. 1949, d. 1.9. 2014, Kolbrún Ingibjörg Benjamínsdóttir, f. 20.7. 1952 og Margrét Benjamínsdóttir, f. 8.10. 1954, d. 1.10. 2022.

Guðmundur kvænist 28.8. 1973 Áslaugu Rögnu Jónsdóttur, f. 28.7. 1951, d. 3.8. 1986. Börn þeirra eru Hafþór, f. 30.1. 1972, d. 4.8. 1989 og Jökull Guðmundsson, f. 2.6. 1978, maki Kolbrún Hlíf Guðmundsdóttir, f. 21.4. 1979 og börn þeirra eru Ásþór Ísak og Hrafnhildur.

...