Gísli Björgvin Freysteinsson fæddist á Akureyri 2. júní 1949. Hann lést á heimili sínu 19. september 2024.

Foreldrar hans voru Freysteinn R. Gíslason, f. 21. júlí 1925, d. 4. ágúst 2009, og Bella Kristín Óladóttir, f. 21. maí 1924, d. 4. maí 2004. Systir Gísla er Óla Kristín, f. 1. október 1946, eiginmaður hennar var Þorgrímur Jónsson, f. 30. október 1946, d. 11. júlí 2024.

Gísli var kvæntur Margréti Sólveigu Traustadóttur, f. 12. október 1951. Þau hófu sambúð sína árið 1979 og gengu síðan í hjónaband 19. ágúst 2002. Fyrir átti Margrét soninn Þorkel Pétursson, f. 11. júní 1971. Eiginkona hans er Guðrún Eiríka Snorradóttir, f. 18. apríl 1969, sonur þeirra er Óliver, f. 1. febrúar 2005. Fyrir átti Þorkell soninn Patrek Svein, f. 23. desember 1994. Eiginkona hans er Anna Margrét Sveinsdóttir, f. 27. september 1993, þau eiga saman soninn Brynjar

...