Það er auðvitað augljóst að kjósendur geta ekki treyst núverandi forystumönnum til að hrinda ofangreindum verkefnum í framkvæmd.
Jón Steinar Gunnlaugsson
Jón Steinar Gunnlaugsson

Jón Steinar Gunnlaugsson

Ég hef jafnan í alþingiskosningum kosið Sjálfstæðisflokkinn. Ástæðan er sú að mér hefur fundist hann standa nær afstöðu minni til frelsis og ábyrgðar en aðrir, auk þess sem flokkurinn hefur haft uppi stefnumið í ýmsum málum, sem mér hafa þótt burðugri en annarra.

Nú eru mér hins vegar að fallast hendur í stuðningi við þennan flokk. Hann hefur nefnilega hreinlega fórnað mörgum stefnumálum í þágu samstarfs í ríkisstjórn með verstu vinstri skæruliðum sem finnast í landinu. Það er eins og fyrirsvarsmenn flokksins hafi verið tilbúnir að fórna stefnumálum sínum fyrir setu í ríkisstjórn. Þá má spyrja: Til hvers eru menn í stjórnmálum ef þeir eru ekki að koma fram þeim stefnumálum sem þeir segjast hafa?

Kosningar eru fram undan. Í ljós kemur í fylgiskönnunum að flokkurinn, sem ég

...