Þórunn Maggý Guðmundsdóttir fæddist 19. september 1933 á Ísafirði. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Grund 14. september 2024.

Þórunn Maggý var aðeins nokkurra daga gömul þegar hún fór með kjörforeldrum sínum, Ingibjörgu Benediktsdóttur, f. 3.10. 1900, d. 31.3. 1971, og Guðmundi Kr. Guðmundssyni, f. 14.1. 1897, d. 9.2. 1946, með skipinu Drottningunni suður þar sem hún ólst upp. Uppeldissystkini Þórunnar Maggýjar voru Guðmundur Kr. og Benedikt.

Blóðforeldrar Þórunnar Maggýjar voru Guðrún Hjaltadóttir, f. 25.6. 1903, d. 27.1. 1995, og Ragnar Benediktsson, f. 23.5. 1899, d. 18.2. 1941.

Alsystkini Þórunnar Maggýjar voru Hjalti, Jóhann Pétur, Ragna Guðrún, Guðni Jóhannes, Ævar Stefán og Karen.

Þórunn Maggý eignaðist sjö börn og eignaði sér tvö í

...