Von er á nýrri kvikmynd um ævi enska tónlistarmannsins Robbie Williams sem ber heitið Better Man. Af hverju ertu að segja okkur frá því, kæri ljósvaki? Takk fyrir að spyrja, það er vegna þess að af einhverjum illskiljanlegum ástæðum er persóna Williams í myndinni api
Tvífari? Svona lítur Williams út í myndinni.
Tvífari? Svona lítur Williams út í myndinni. — Ljósmynd/Skjáskot

Gunnar Egill Daníelsson

Von er á nýrri kvikmynd um ævi enska tónlistarmannsins Robbie Williams sem ber heitið Better Man. Af hverju ertu að segja okkur frá því, kæri ljósvaki? Takk fyrir að spyrja, það er vegna þess að af einhverjum illskiljanlegum ástæðum er persóna Williams í myndinni api. Tölvuteiknaður (e. CGI). Í stiklu fyrir myndina lítur apinn ansi gervilega út en kannski mun hann líta eitthvað betur út þegar á hvíta tjaldið er komið. Ljósvaki hefur sínar efasemdir um það.

Eftir því sem næst verður komist er ástæðan fyrir því að Williams er api í ævisögulegri kvikmynd um sig sú að leikstjórinn spurði hann hvaða dýr Williams væri í anda. Við getum okkur þess til hvert svarið var.

Ljósvaki veit ekki hvort honum eigi að finnast

...