Listakvárið Hayden Dunham opnar sýninguna Salt nýrrar jarðar í Þulu, Marshallhúsinu, á morgun, laugardaginn 5. október, klukkan 16-18. Hayden hefur miklar tengingar við Ísland og kemur hingað reglulega til þess að vinna að list sinni
Listakvárið Hayden Dunham opnar sýninguna Salt nýrrar jarðar í Þulu, Marshallhúsinu, á morgun, laugardaginn 5. október, klukkan 16-18. Hayden hefur miklar tengingar við Ísland og kemur hingað reglulega til þess að vinna að list sinni. Í sýningunni Salt nýrrar jarðar er það efnið ál og samband okkar við það sem á hug listakvársins allan og kviknaði áhugi háns á efninu þegar hán var á Íslandi og fór að velta fyrir sér álverum í landinu.