Jón Kalman Stefánsson hlaut á dögunum Budapest Grand Prize og var heiðursgestur á Alþjóðlegu bókmenntahátíðinni í Búdapest. „Þessi virtu verðlaun eru árlega veitt rithöfundi sem telst í fremstu röð samtímahöfunda,“ segir í tilkynningu frá Benedikt bókaútgáfu. Meðal fyrri verðlaunahafa eru Salman Rushdie, Günter Grass, Umberto Eco, Bret Easton Ellis, Michel Houellebecq, Sofi Oksanen, Jonathan Franzen, Orhan Pamuk, Karl Ove Knausgaard og Svetlana Aleksijevitj.