Stjarnan vann sannfærandi heimasigur á ríkjandi Íslandsmeisturum Vals, 95:81, í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í Garðabænum í gærkvöldi. Stjarnan var með sex stiga forskot í hálfleik, 40:34, þökk sé flottum öðrum leikhluta
Körfuboltinn
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Stjarnan vann sannfærandi heimasigur á ríkjandi Íslandsmeisturum Vals, 95:81, í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í Garðabænum í gærkvöldi.
Stjarnan var með sex stiga forskot í hálfleik, 40:34, þökk sé flottum öðrum leikhluta. Valur vann annan leikhluta 31:26 og minnkaði muninn í eitt stig, 66:65. Stefndi í spennandi lokaleikhluta, en sú varð ekki raunin því Stjarnan vann hann sannfærandi og leikinn í leiðinni.
Ægir Þór Steinarsson átti góðan leik fyrir Stjörnuna, skoraði 24 stig, tók sex fráköst og gaf níu stoðsendingar. Hilmar Smári Henningsson gerði 23 stig. Taiwo Badmus skoraði 27 stig og tók tíu fráköst fyrir Val. Kristinn Pálsson bætti við 22 stigum.
...