Breiðablik Ásta Eir Árnadóttir er fyrirliði Kópavogsliðsins.
Breiðablik Ásta Eir Árnadóttir er fyrirliði Kópavogsliðsins. — Morgunblaðið/Eggert

„Leikurinn leggst mjög vel í Blika. Það er mikil tilhlökkun og spenna. Ég sjálf og stelpurnar erum ótrúlega spenntar fyrir þessum leik,“ sagði Ásta Eir Árnadóttir fyrirliði Breiðabliks í samtali við Morgunblaðið fyrir úrslitaleikinn gegn Val sem hefst á Hlíðarenda klukkan 16.15 í dag.

Blikum nægir jafntefli til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn en Ásta Eir telur ekki ráðlegt að fara í leikinn til þess að spila upp á jafntefli.

„Ég held að það sé hættulegt ef þú gerir það en við erum ekki að fara að gera það. Við ætlum í þennan leik til þess að vinna hann. Það er það sem við horfum á og er planið,“ sagði hún.

Er Blikum hefnd í huga eftir tapið fyrir Val í

...