— Morgunblaðið/Eyþór Árnason

„Eilíft vandamál yfir vetrartímann er akstur foreldra barna sinna í skólann á morgnana,“ hljómaði setning sem blasti við prófarkalesurum Morgunblaðsins í september 2000 og þótti orðalagið harðsnúið. Var enda hnikað til. Guðfinna Kristjánsdóttir, leikskóladeildarstjóri í Skerjafirði, með skjólstæðinga sína í vagni, rifjaði aldarfjórðungsgamla setningu öngvu að síður upp, þótt varla séu þar hennar afkvæmi.