Söngvarinn Davíð Ragnarsson hefur fengið góðar umsagnir fyrir frammistöðu sína í konsertuppfærslu á óperunni Brottnámið úr kvennabúrinu eftir Mozart, sem hljómsveitin Neue Philharmonie hefur flutt undanfarið víða um Norður- og Suður-Þýskaland
Davíð Ragnarsson
Davíð Ragnarsson

Söngvarinn Davíð Ragnarsson hefur fengið góðar umsagnir fyrir frammistöðu sína í konsertuppfærslu á óperunni Brottnámið úr kvennabúrinu eftir Mozart, sem hljómsveitin Neue Philharmonie hefur flutt undanfarið víða um Norður- og Suður-Þýskaland.

Davíð, sem fer með hlutverk Osmans, varðarins í kvennabúrinu, er hrósað í hástert í blaðinu Schwäbische Zeitung fyrir flutning sinn í bænum Bad Buchau fyrir að gera Osmin frábær skil. „Með sínum volduga, hyldýpissvarta bassa, afgerandi líkamsburðum og útgeislun sinni gerði hann „siguraríuna“ að hápunkti sýningarinnar,“ skrifar rýnir blaðsins, Günther Launert.

Í umfjöllun sama blaðs um uppfærsluna á Brottnáminu í Friedrichshafen skrifar Helmut Voith að það hafi verið „dásamlegt hvernig hinn litríki

...