Noregur Júlíus Magnússon hefur spilað alla 24 leiki Fredrikstad í ár.
Noregur Júlíus Magnússon hefur spilað alla 24 leiki Fredrikstad í ár. — Morgunblaðið/Óttar Geirsson

Júlíus Magnússon, fyrirliði og miðjumaður norska liðsins Fredrikstad, er kominn inn í landsliðshópinn í fótbolta fyrir leikina gegn Wales og Tyrklandi í Þjóðadeildinni 11. og 14. október. Åge Hareide bætti honum í hópinn sem 24. manni í gær. Júlíus, sem er 26 ára gamall og hefur leikið þrjá A-landsleiki, hefur verið í stóru hlutverki hjá Fredrikstad sem hefur komið á óvart sem nýliði í norsku úrvalsdeildinni og er í baráttu um Evrópusæti.