60 ára Sigrún ólst upp í Reykjavík en býr í Kópavogi. Hún er viðskiptafræðingur frá Ohio University og er teymisstjóri rekstrar og þjónustu hjá Skipulagsstofnun. Áhugamálin eru fjölskyldan, ferðalög innanlands og utan, útivist, bækur og handavinna.


Fjölskylda Eiginmaður Sigrúnar er Hlynur Geir Guðmundsson, f. 1962, viðskiptafræðingur og vinnur við samningastjórn í Landsbankanum. Dætur þeirra eru Hrefna Rós, f. 1994, og Hildur Edda, f. 2004. Barnabörnin eru Snorri Leó og Ari Hlynur, börn Hrefnu Rósar og maka hennar, Sigurbjörns Ara Sigurbjörnssonar. Foreldrar Sigrúnar: Eysteinn Leó Jónsson, f. 1936, d. 2014, skrifvélavirki, og Sigríður Guðmunda Jónsdóttir, f. 1940, sjúkraliði, búsett í Reykjavík.