Nú eru fleiri þekktir fyrir eitthvað en nokkurn tíma fyrr. „Mike Tyson er þekktur fyrir barsmíðar.“ En hann er líka þekktur að eða kunnur að barsmíðum

Nú eru fleiri þekktir fyrir eitthvað en nokkurn tíma fyrr. „Mike Tyson er þekktur fyrir barsmíðar.“ En hann er líka þekktur að eða kunnur að barsmíðum. Þetta þýðir allt hið sama. En svo er Tyson, eins og aðrir afreksmenn, þekktur af – af – verkum sínum (sem fólust í því að lumbra á völdum andstæðingum með listrænum hætti).