Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar og oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, mun aftur sækjast eftir leiðtogasæti fyrir næstu þingkosningar. Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri og forsetaframbjóðandi, hyggst einnig sækjast eftir leiðtogasæti í Reykjavík
Inga Þóra Pálsdóttir
ingathora@mbl.is
Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar og oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, mun aftur sækjast eftir leiðtogasæti fyrir næstu þingkosningar. Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri og forsetaframbjóðandi, hyggst einnig sækjast eftir leiðtogasæti í Reykjavík. Hann hefur ekki gefið upp hvort hann bjóði sig fram í Reykjavíkurkjördæmi norður eða suður. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Hanna Katrín segir frábært að fleira fólk sé að ganga til liðs
...