— Colourbox

Vandræðaleg hljóð í nágrönnunum voru til umræðu í Ísland vaknar á föstudag. Kvenhlustandi hringdi inn og lýsti raunum sínum fyrir þáttastjórnendum en hún heyrði reglulega í kynlífslátum nágranna sinna. „Það er úti um alla íbúð og það er ekki bara heimilisfólkið,“ sagði konan. Hún viðurkenndi að þetta væri farið að angra fjölskylduna töluvert enda börn á heimilinu. „Mig varðar ekkert um hvað fólk er að gera heima hjá sér en fólk verður að athuga það að ef þú ætlar að búa í fjölbýli þá þarf það að taka tillit til nágrannanna.“ Hlustaðu á brotið á K100.is