Breiðablik tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu kvenna í nítjánda skipti þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Val í hreinum úrslitaleik í lokaumferð efri hluta Bestu deildarinnar á Hlíðarenda á laugardag. Breiðablik var með eins stigs forskot á toppnum fyrir lokaumferðina og dugði því jafntefli. Valur hafði orðið Íslandsmeistari undanfarin þrjú ár. Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, tilkynnti svo í gær að hún væri búin að leggja skóna á hilluna » 27