Beirút Reykur rís úr rústum í sunnanverðum úthverfum Beirút.
Beirút Reykur rís úr rústum í sunnanverðum úthverfum Beirút.

Að minnsta kosti 25 manns létust og 96 særðust í loftárásum Ísraels á sunnanverða Beirútborg í Líbanon í gær, að sögn líbanskra heilbrigðisyfirvalda. Sprengjum hefur rignt yfir Suður-Beirút frá því að Ísraelsmenn hófu umfangsmiklar loftárásir þar síðasta mánudag.

Ísraelsmenn segja markmið árásanna vera að halda vígamönnum Hisbolla í Líbanon í skefjum og vernda Norður-Ísrael frá frekari loftárásum. Fregnir bárust einnig í gærkvöldi af því að flugskeyti hefði hafnað í Haifa í norðanverðu Ísrael. Hisbolla skutu fleiri en 100 flugskeytum að Ísrael í gær að

...