Hinn 7. október 2023 áttu Ísraelsmenn sér ekki ills von – eða ekki verra en vant er – og héldu upp á Rosh Hashanah, nýja árið samkvæmt tímatali gyðinga. Í morgunsárið brast hins vegar á með mikilli eldflaugaárás frá Gasa, sjálfstjórnarsvæði Palestínu á valdi Hamas.

Eldflaugaárásin var þó aðallega gerð til þess að draga athyglina frá hinni raunverulegu árás, sem þá var í þann veginn að hefjast, þegar þúsundir liðsmanna Hamas ruddu sér leið í gegnum hin nánast lokuðu landamæri, og drápu nánast allt sem fyrir varð.

...