Aldís Guðlaugsdóttir markvörður FH var besti leikmaðurinn í 23. og síðustu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Aldís átti stórgóðan leik í marki Hafnarfjarðarliðsins þegar það fékk Þrótt úr Reykjavík í heimsókn á…
Best Aldís Guðlaugsdóttir hefur varið mark FH frá árinu 2022.
Best Aldís Guðlaugsdóttir hefur varið mark FH frá árinu 2022.

Aldís Guðlaugsdóttir markvörður FH var besti leikmaðurinn í 23. og síðustu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins.

Aldís átti stórgóðan leik í marki Hafnarfjarðarliðsins þegar það fékk Þrótt úr Reykjavík í heimsókn á laugardaginn en náði þó ekki að koma í veg fyrir tap því Þróttarar unnu leikinn 3:0.

Markvörðurinn fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í leiknum og var eini leikmaðurinn í liðunum sex í efri hluta deildarinnar sem fékk þá einkunn í lokaumferðinni.

Aldís fékk þar með samtals 10 M á tímabilinu, næstflest allra leikmanna FH, og var í hópi efstu markvarða deildarinnar í einkunnagjöfinni.

Aldís er Ólafsvíkingur, tvítug að aldri, og spilaði fyrst

...