Knattspyrnukonan Samantha Smith er besti leikmaðurinn í Bestu deild kvenna í september og október samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins. Samantha varð á laugardaginn Íslandsmeistari með Breiðabliki og varð fyrr í sumar meistari 1. deildar með Austfjarðaliðinu FHL. Þá er hún besti leikmaður mánaðar í annað skiptið í röð hjá Morgunblaðinu. » 26