Jónatan Einarsson fæddist í Reykjavík 19. apríl 1975. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 23. september 2024.

Foreldrar hans eru Einar Jónatansson frkvstj. í Bolungarvík, f. 27.1. 1954, og Guðrún Bjarnveig Magnúsdóttir, organisti og fv. píanókennari, f. 12.6. 1955.

Jónatan á tvo syni með fyrrverandi sambýliskonu sinni, Tinnu Björk Sigmundsdóttur, f. 1980; Einar, f. 18.1. 2005, og Jakob Erni, f. 3.3. 2011. Þeir eru búsettir í Danmörku. Fyrir átti Tinna soninn Hauk Sindra, f. 10.2. 1999, sem var Jónatan einnig mjög kær. Faðir hans er Karl Jónsson.

Jónatan var elstur þriggja bræðra. Yngri eru Magnús Már, f. 1981, og Kristinn Gauti, f. 1987.

Magnús Már er kvæntur Örnu Ólafsdóttur, f. 1981. Þau eiga samtals fjögur börn. Magnús á Guðmund Elí, f.

...