— Skjáskot/TikTok

Júnía Lín deildi skemmtilegu myndbandi af systur sinni, hinni heimsfrægu Laufeyju Lín, á TikTok-síðu sinni í vikunni, en það hefur eflaust vakið hlýjar tilfinningar hjá þeim fjórum milljónum sem hafa horft á það þegar þetta er skrifað. Myndbandið var tekið í síðdegisgöngutúr tvíburasystranna en á leiðinni mættu þær, að eigin sögn, krúttlegu djassbandi. Laufey spurði í kjölfarið hvort hún mætti syngja með hljómsveitinni, sem var ekki lengi að samþykkja það, en útkoman er hreint út sagt gullfalleg. Sjáðu myndbandið í jákvæðum fréttum á K100.is.