Argentínska stórstjarnan Lionel Messi og íslenski knattspyrnumaðurinn Dagur Dan Þórhallsson eru á meðal leikmanna í bandarísku MLS-deildinni sem tilnefndir eru til verðlauna. Messi, sem leikur með Inter Miami, er tilnefndur sem mikilvægasti…
Tilnefning Dagur Dan er í hópi mætra manna sem eru tilnefndir.
Tilnefning Dagur Dan er í hópi mætra manna sem eru tilnefndir. — Ljósmynd/Orlando City

Argentínska stórstjarnan Lionel Messi og íslenski knattspyrnumaðurinn Dagur Dan Þórhallsson eru á meðal leikmanna í bandarísku MLS-deildinni sem tilnefndir eru til verðlauna. Messi, sem leikur með Inter Miami, er tilnefndur sem mikilvægasti leikmaður tímabilsins 2024 og Dagur er tilnefndur í flokki bestu varnarmanna tímabilsins. Hinn fjölhæfi Dagur hefur mestmegnis leikið í stöðu hægri bakvarðar með liði sínu Orlando City í ár.