Undanfarnar vikur og mánuði hef ég átt í miklu basli með að finna nýjan ilm til að bæta í safnið. Ef til vill er ég orðinn svona afskaplega erfiður og kröfuharður, eða kannski er smekkurinn að breytast því ilmir sem ég hef áður lofsamað á síðum…
Þrátt fyrir nafnið er agarviðarolían í aukahlutverki hjá Oud Affair frá Vilhelm Parfumerie.
Þrátt fyrir nafnið er agarviðarolían í aukahlutverki hjá Oud Affair frá Vilhelm Parfumerie.

Hið ljúfa líf

Ásgeir Ingvarsson

ai@mbl.is

Undanfarnar vikur og mánuði hef ég átt í miklu basli með að finna nýjan ilm til að bæta í safnið. Ef til vill er ég orðinn svona afskaplega erfiður og kröfuharður, eða kannski er smekkurinn að breytast því ilmir sem ég hef áður lofsamað á síðum blaðsins hitta ekki lengur í mark og hef ég gefið þá flesta frá mér.

Stundum held ég að ég hafi uppgötvað áhugaverðan nýjan ilm en kemst svo að því að þegar upphafstónarnir dofna kemur eitthvað lakara í ljós. Þá má ekki gleyma að nefið er skrítið skynfæri og ilmvatn sem angar agalega vel þegar sól skín í heiði og lundin er létt, gæti haft á sér allt annað yfirbragð þegar úti er kalt og blautt og drunginn ræður ríkjum.

Á endanum varð ég

...