Öflug Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur farið vel af stað í Mílanó.
Öflug Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur farið vel af stað í Mílanó. — Morgunblaðið/Arnþór Birkisson

Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir átti afar góðan leik fyrir Inter Mílanó er liðið gerði jafntefli við ríkjandi meistara Roma, 1:1, á útivelli í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu á laugardag. Cecilía varði níu skot í leiknum og átti stóran þátt í að Inter náði í gott stig gegn meisturunum en Inter er með 11 stig í 3. sætinu. Hún var verðlaunuð með sæti í liði fimmtu umferðarinnar, en liðið var birt á heimasíðu knattspyrnusambandsins í gær.