Árbær Gunnar Magnús Jónsson verður ekki áfram þjálfari Fylkis.
Árbær Gunnar Magnús Jónsson verður ekki áfram þjálfari Fylkis. — Ljósmynd/Kristinn Steinn

Knattspyrnuþjálfarinn Gunnar Magnús Jónsson verður ekki áfram þjálfari kvennaliðs Fylkis, en stjórn félagsins ákvað að framlengja ekki samning hans sem rann út eftir tímabilið. Gunnar staðfesti tíðindin við Fótbolta.net í gær.

Hann kom Fylki upp úr 1. deild á síðustu leiktíð en tókst ekki að halda liðinu uppi á nýliðinni leiktíð, þar sem það endaði í botnsætinu með aðeins 13 stig eftir 21 leik.