Að taka undir söng er að syngja með. Að taka undir orð e-s er að samsinna e-m. Að taka undir með e-m merkir sama: „Ræðumaður kvað tillöguna ótæka og margir tóku undir með honum.“ Það sem maður tekur undir þarf að vera í þolfalli: maður…

taka undir söng er að syngja með. Að taka undir orð e-s er að samsinna e-m. Að taka undir með e-m merkir sama: „Ræðumaður kvað tillöguna ótæka og margir tóku undir með honum.“ Það sem maður tekur undir þarf að vera í þolfalli: maður tekur undir sönginn, röksemdafærsluna eða eina bölvaða vitleysuna enn, eftir atvikum.