Maður sópar saman rústum á bensínstöð í Lakewood Park á Flórída eftir að fellibylurinn Milton fór þar um. Að minnsta kosti þrettán létust að sögn yfirvalda í Bandaríkjunum. Fellibylurinn er flokkaður sem stór þriðja stigs fellibylur en samhliða miklu ofsaveðri hafa sjávarflóð valdið talsverðum skemmdum.
Tjónið er mikið á þeim svæðum sem verst urðu úti. Á myndum frá fréttaveitunni AFP mátti sjá hvernig vatn flæðir yfir götur í heilu hverfunum í Punta Gurda á Siesta Key-svæðinu. Mikið vatn var enn á götum í Clearwater í gær á sama tíma og viðbragðsaðilar hjálpuðu íbúum að komast af heimilum sínum. Í miðborg St. Petersburg féll byggingarkrani á háhýsi og olli miklum skemmdum. Þar í borg rifnaði þakið af Tropicana-vellinum.