Kröfum ríkisins í eyjar og sker hefur verið fækkað um helming, úr um tvö þúsund niður í eitt þúsund, eftir að lögmenn íslenska ríkisins tóku til endurskoðunar kröfulýsingar fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins á svæði 12. Hefur óbyggðanefnd fengið endurskoðaðar þjóðlendukröfur vegna eyja og skerja umhverfis landið.
Í samantekt lögmanna ríkisins segir að af þessum tölum megi ráða hversu mikilvægt og í reynd nauðsynlegt hafi verið að fara í þá vinnu að leitast við að afmarka svæði 12 með skýrari hætti. Fyrir liggja nú endurskoðaðar kröfur um þjóðlendur og samhliða þessu hefur ný kortasjá verið gerð aðgengileg sem hefur að geyma upplýsingar um fjöruborð sem unnar eru eftir bestu heimildum.